Sunnudagur 10.maí

Halldóra frænka þrítug í dag, til hamingju með daginn frænka.

Við systurnar 43 í Oddfellow ætluðum til Ísafjarðar þessa helgi. Ég var búin að bóka flug á föstudaginn seinnipartinn, en það var ófært þannig að ég skellti mér í rútuna með hinum konunum. Fórum af stað hressar og kátar áleiðis, en þegar við vorum komnar upp fyrir Fornahvamm í Norðurárdal, þá mættum við lögreglunni með blikkandi ljós. Holtavörðuheiði var ófær, flutningabíll þversum á veginum, fullt af bílum útaf og lögreglan var að snúa bifreiðum niður til baka sem voru komnar af stað á heiðina. Nú voru góð ráð dýr, hvað áttum við að gera. Fréttum af konum sem voru komnar af stað frá Ísafirði og voru strand á Steingrímsfjarðarheiði, þannig að þó að við kæmumst yfir Holtavörðuheiði þá yrðum við í basli með restina af ferðinni. Við snerum við og vorum sem betur fer vel nestaðar og fengum okkur kvöldmat í rútunni við Fornahvamm. Og á meðan voru "bílfreyjurnar" þ.e. skemmtinefndin að hringja út og suður að redda gistingu fyrir okkur.  Við enduðum á Hótel Hamri, þar var bara ræst út fyrir okkur, og eiga þau hjón hrós fyrir að redda "hröktum" ferðalöngum til byggða.  Voru herbergin ekki alveg tilbúin þegar við komum en hvað um það við hjálpuðum nokkrar til og síðan fengum við sal fyrir okkur, þar sem við skemmtum okkur fram eftir kvöldi og síðan var náttfatapartý í einhverju herberginu. Laugardagurinn þá fórum við rúnt um Snæfellsnesið, byrjuðum í hádegismat á Hótel Stykkishólmi og fórum síðan hringinn, og heim rétt eftir kvöldmat. Þannig að það voru þreyttar en mjög ánægðar konur sem komu heim heilar á höldnu úr þessari óvissuferð.  - En það verður farið til Ísafjarðar en ekki strax með þennan hóp. 

Hins vegar er ég að fara til Ísafjarðar í þar næstu viku með góðum hóp vinnufélaga, þannig að ég kemst til að skoða heimabyggðina þrátt fyrir allt þetta vorið.

Síðan er búið að ákveða að við förum um verslunarmannahelgina til Ísafjarðar. Litlu grjótin í fjölskyldunni eru búin plana útilegu með þátttöku í mýrarboltanum og eru einir 40 meðlimir búnir að bóka sig í ferðina. 

Við hjónin fjárfestum í notuðum (2008) tjaldvagni til að geta tekið þátt í ferðalögum sumarsins, okkur hefur stundum fundist við bundin við sumarbústaðinn, og ekki getið farið neitt annað en nú verður breyting á því, sumarfríið notað sjálfsagt til að ferðast um landið.  Í júlí er allavega bókuð hin árlega fjölskylduútilega Snorra Goða og á að fara í Þórsmörk, ekki verður gist þar heldur á tjaldstæði í nágrenni Þórsmerkur, síðan er jeppaferð í sjálfa Þórsmörkina.

Af framkvæmdum við sumarhúsið okkar er það að frétta, að þegar við mættum í bústaðinn 1.maí var búið að grafa rafmagnsstrenginn að hliði til okkar. Við þurfum síðan að ganga sjálf frá að láta grafa frá hliði að húsi, og verður það gert í næstu viku, Maggi fór austur síðasta föstudag með rafmagnsrör sem lögnin verður lögð í og samdi við gröfumanninn, og eins hvar hann ætti að fara með strenginn að húsinu, hann ætlaði einnig að koma með hlass af möl til að leggja yfir planið því það verður örugglega sundurtætt eftir hann. Leiðinlegt að hafa rauðamölina út um allt, þá er mölin skárri kostur.  Hvenær rafvirkinn kemst síðan til að vinna í að tengja það kemur síðan í ljós. Vonandi veður það seinna í mánuðnum, við förum í sumarfrí um hvítasunnuna þannig að vonandi verður  komið rafmagn.  


Sunnudagur 19.apríl

Ég er búin að skrá á mig fyrstu veikindadagana síðan 199xxx og eitthvað, man ekki hvenær ég lagðist í flensu síðast. Ég lagðist í rúmið þriðjudag fyrir páska og steinlá alla páskana og nú eru liðnar næstum 2 vikur og enn þá er ég ekki orðin góð, er með ljótan hósta og fæ óstöðvandi hóstaköst öðru hverju.  Ég er búin að fara í lungna og ennis/kinnholu myndatöku og ekkert að finna þar. Ég verð bara að ná þessu úr mér með hóstasaft og beiskum brjóstsykri ásamt verkjatöflum til að slá á hóstan, en ég er vægast sagt að verða þreytt á þessu. 

Ég ætlaði mér að vinna í garðinum þessa helgi, hreinsa til rusl sem fokið hefur í runna og klippa aðeins, en ég horfi bara á garðin út um gluggann, ætla mér að gera sem minnst úti þessa helgi, annars er búið að vera rok síðan í gærkveldi, skyldi ruslið hafa fokið yfir í næsta garð.

Við fórum á skírdag (ég veik) upp í bústað og vorum fram á páskadag, mér fannst ekki skipta máli í hvoru rúminu ég lægi veik.  Það var milt og gott veður um páskana og vorið á næsta leiti þar eins og hér. Rafmagnið ekki enn komið, umsóknin týnd í kerfinu hjá Rarik og vonandi finnst hún í vikunni og þeir geti byrjað að grafa allavega að húsinu, og síðan hefst innanhúsvinnan við lagningu ljósa og tengla.

Af handavinnunni minni er það að frétta, að ég kláraði að sauma saman óvissuverkefnið sem ég byrjaði á um daginn, og er langt komin með að kvilta það saman.  Hins vegar af prjónaverkefninu þ.e. barnateppinu þá er annað hvort að henda því......... eða rekja upp, og er ég að bíða eftir betri uppskrift og þannig að ég ætla að rekja það upp og byrja aftur, annars verð ég aldrei ánægð með það eins og það er í dag.

Kosningarnar er um næstu helgi, búið er að vera vinna hjá yfirkjörstjórn meira og minna síðustu 2 vikur og núna er að hefjast lokatörnin næstu viku, og síðan kjördagurinn sjálfur með öllu sínum uppákomum sem vonandi verða ekki miklar. 


Sunnudagur 15.mars

Það var sannanlega óvissuhelgi sem ég fór í núna á föstudaginn.  Ég var búin að skrá mig á bútasaumsnámskeið hjá Guðrúnu Erlu í Flóanum, fór snemma úr vinnunni sem betur fer.  Gekk mjög vel að keyra austur, veðurspáin var nefnilega ekkert mjög góð búið að vara við stormi.  Sem betur fer sá ég ekkert út um glugga um kvöldið og þegar átti að huga að heimferð í bústaðinn þá var orðið illfært, Hellisheiðin lokuð þannig að við Helga tókum með okkur vinkonu hennar og var hún á betur útbúnum bíl en ég, og bað ég hana um að keyra, ferðin hjá okkur gekk hægt en við komumst á leiðarenda að lokum.  Magnús var komin í bústaðin, hann fór seinna úr bænum um kl. 18  og var hann rúma 2 tíma austur. Þetta var síðan skottúr niðurúr morgunin eftir, og þá heyrðum við sögur af konum sem voru tvo tíma að keyra 20. mín spotta um kvöldið og aðrar sem ætluðu í bústað ekki langt frá okkar, þær sneru við og gistu á hótelinu á Selfossi.

 

 

Þetta er löberinn sem við saumuðum á föstudagskvöldinu.

Laugardagsverkefnið var óvissuverkefni eins og veðrið sem var orðið mikið betra, og var það afhent í skrefum eftir því hvernig gekk að sauma, og er ég rétt rúmlega hálfnuð með samsetningu blokkana, mynd kemur af því verkefni síðar. 

Lopapeysan er búin og ég tekin til við nýtt verkefni í prjónaskapnum, en ég sá þetta fallega barnateppi á netinu um daginn og gat ekki hætt að hugsa um það og er byrjuð á miðjunni á því, það er prjónað út frá miðju og síðan hver hlið sér, þangað til komið er að ysta kantinum þá er farið í hring. Þetta er svokallað Prinsateppi eða konunglega barnateppið.

Nú síðar í vikunni tekur við fjögura daga vetrarfrí hjá okkur, við ætlum í bústaðinn og slaka á.  Af rafmagninu er það að frétta að búið er að skila inn teikningu til Rarik og bíðum við eftir afgreiðslu, við erum búin að kaupa ljósin, vonandi fer þetta að bresta á. 

Við höfum aðeins verið að passa litlu Dís, hún kom við hjá ömmu og afa um helgina og er þessi mynd af henni síðan þá, með risa kleinu og í inniskónum hennar ömmusinnar. 

 

 

Meira síðar. 


Sunnudagur 15.feb

Ég er búin að vera föst við prjónana síðustu daga og viku, þannig að ég er með þvílíka vöðvabólgu og vakna með hausverk hvern einasta morgun. En ég ætla að klára þessa blessuðu lopapeysu sem fyrst.

  handavinna_14_feb_009.jpg

 Í síðustu viku fékk ég sendan pakka frá Ingu frænku, poki og uppskrift af honum, einnig hafði ég fundið á netinu samskonar poka og sýnikennslu hvernig hann er gerður. Og prófaði ég í dag að gera hann, og sá að ég þarf aðeins að lagfæra ferlið en hann er ágætur undir spottana við saumavélina. 

 

~

En að öðru við höfum nú ákveðið að taka inn rafmagn í sumarbústaðinn. Við erum búin að fá tilboð frá Rarik og fá mann til að teikna og leggja rafmagnið fyrir okkur, þetta verður dýrt, við höfum verið að bíða með þetta síðan við keyptum bústaðinn þar sem stóð alltaf til að skipuleggja sumarhúsasvæði í kringum bústaðinn. En vegna kreppunnar þá er búið að setja þetta allt saman í salt. Og tókum við því þá ákvörðun um að fá okkur samt rafmagn. Með þessu verður allt önnur notkun á bústaðnum.  Og við getum nýtt hann betur á veturna en við höfum gert hingað til. 

sumarbusta_ur_a_thorra_2009_031.jpg

 


Sunnudagur 1.feb

Ég ætlaði ekki og það var eitt að markmiðum mínum að kaupa ekki í neitt verkefni fyrr en ég hefði klárað eitthvað af því sem er óklárað. En ...... ég stóðst ekki mátið, það var svo gaman að prjóna lopavestið að ég fór á föstudaginn og keypti mér í lopapeysu. Gengur vel að prjóna hana og verð ég örugglega búin með hana um næstu helgi með þessu áframhaldi.

 Síðan í vikunni skráði ég mig á helgarnámskeið í bútasaum á Selfossi í mars. Guðrún Erla er að koma frá USA með eitthvað flott til að kenna okkur, ég stóðst alls ekki mátið og ætla að drífa mig ásamt vonandi fullt af skemmtilegum konum. 

Svo er meira saumatengt á döfinni í september sem kemur í ljós síðar ef Guð lofar.

~

Litla Dís var hjá okkur í næturheimsókn í fyrsta skipti alein síðastliðið föstudagskvöld. Í þetta litla barn hefur verið sett einhver eðalblanda, þvílíkt draumabarn. Alltaf svo róleg og yfirveguð, en prakkari.

bergdis_i_speglinum.jpg bergdis_prakkari.jpg


Sunnudagur 18.jan

Prjónaskapur hefur átt hug minn allan síðustu vikur, ég kláraði vestið góða og nota það óspart. Einnig var ég búin að kaupa í vesti sem ég sá í blaðinu sem peysan hennar Bergdísar var í og hef verið að klöngrast í gegn um þá uppskrift - óþolandi þegar uppskriftir eru settar á prent og þær ekki prófaðar fyrst af þeim sem gefa þær út eða allavega sendar út leiðréttingar á netinu. Ég er búin að argast yfir þessu alla vikuna.

Hins vegar gengur vel með bútaverkefnið sem ég byrjaði á síðasta laugardag, ég náði að klára næstum 2 blokkir og þá er ég rúmlega hálfnuð með þetta mánaðarverkefni 2006. Ég hafði hugsað mér núna að setja bara upp saumavélina á eldhúsborðið og hafa hana þar - þá gæti ég gripið í eina og eina blokk á kvöldin

Önnur markmið - þau byrjuðu allavega vel.  Ég náði markmiðunum mínum á fyrstu 2 vikunum. En í þessari viku hefur ekki gengið eins vel, ég datt í hálkunni á þriðjudaginn, hafði þá ætlað í göngutúr um kvöldið en var slösuð aðallega á stoltinu, það var asskoti sárt að hrynja svona á bílastæðinu. En ég slasaðist sem betur fer ekki. 

Við vorum árlegt janúar fjölskylduboð hér í gærkveldi, hangiket og tilheyrandi. Tengdó bauð sonum sínum til veislu og sátum við öllsömul litla fjölskyldan til að verða miðnættis og spjölluðum. Litla Dís er að verða óhræddari við að taka fleiri og fleiri spor sjálf og tölti hér um á milli manna. 

 

 

Annars er skemmtileg ferð fyrirhuguð í september ef Guð lofar. Við ásamt hóp sóknarnefndarmanna Hafnarfjarðarkirkju, og maka þeirra - Magnús er í sóknarnefnd, erum að fara til Rómar, við fáum að hitta Benedikt Páfa í Vatíkaninu ásamt því að skoða helstu minjar Rómaborgar, fararstjórinn er sr. Þórhallur Heimisson og hann aldrei hitt Páfann en farið í nokkrar ferðir um Róm sem fararstjóri og er hann hafsjór af fróðleik um Rómarborg, nú þarf ég að fara á bókasafnið og finna mér túristabækur um Róm þannig að maður sé ekki alveg eins og úti á túni þegar maður mætir á svæðið.

 


Gleðilegt ár

Trefill

 

Árið byrjar með prjónaskap, ég tók upp prjónana í desember, gerði ég mér fyrst trefil úr mohairgarni.

Síðan tók við léttlopakjóll á dótturina, sem hún óskaði eftir, við tengdó sameinuðust að prjóna hann og svo var var það peysa á Bergdísi, ég tók ástfóstri við garnið úr Storkinum þ.e. Kaffe Fasset garnið í gamla daga, ég prjónaði svoldið úr því þá, og ákvað að kaupa aftur og er sko alls ekki svikin af því, þvílíkur gæðamunur enda kostar það "aðeins meira" en er alveg þess virði.

peysa_f_bergdisi.jpg

 

 

 

 

Núna er ég að prjóna á mig lopavesti úr léttlopa. 

Síðan er eitt af markmiðunum ársins að kaupa ekki í neitt nýtt nema að vera búin að klára eitthvað sem ég hef byrjað á fyrst....... það er eitt og annað til óklárað í handavinnuherberginu.

  • Ábyrjað verkefni frá Virku frá 2006 nokkuð langt komið
  • Verkefni frá Virku 2007 sem enn er í pakkningunum
  • Klára að ganga frá Íslensku rósinni - löper frá Löngumýri sept 2008 aðeins eftir að kvilta.
  • Svart/hvíta teppið
  • Ferðatöskuteppið - það eru handsaumuðu ferningarnir, er aðeins gert í bústaðnum.
  • Jólakrosssaumsdúkurinn
  • Bogateppið fyrir Guðnýju - efnin eru enn í bunkanum
  • Síðan að klára að kvilta lúruteppin, sem búið er að sauma.
  • Klára að hekla milliverkið í sængurverið, hinn helminginn heklaði föðuramma mín.

Ég man ekki eftir fleiru í augnablikinu - sjálfsagt eitthvað sem leynist í skúffunum.

Hin markmiðin mín hef ég fyrir mig en þau eru vandlega skrifuð niður þannig að ég læt vita þegar einhverju þeirra hefur verið náð.

Annars lauk síðasta ári mjög vel og ég óska þess að þetta ár gefi okkur áframhaldandi gleði. 


Gleðileg jól

 

Gleðileg jól öll sömul, megið þið eiga eins gleðileg og ljúf jól og ég.

Mikið hlakka ég til að eiga 5 daga frí og þurfa ekki að gera neitt nema eta, sofa og lesa jólabækurnar og eta meira.

 Gleðileg jól elskurnar mínar

Kv Fríða  


Grjótaættarmót

Lífið hefur gengið "svona" sinn vanagang síðast liðnar vikur, Týra er farinn yfir móðuna miklu, við heyrum ennþá tiplið á parketinu, og sorgin er að jafna sig, mér finnst enn ég þurfa á morgnana að vakna til að hleypa henni út.  Mikið hefur verið að gera í vinnunni, nú er maður að takast á við mikla erfiðleika hjá fólki.

En það er líka margt skemmtilegt að gerast, Grjótaættin öll stóra mikla, systkini pabba míns og afkomendur þeirra, ætlum að hittast í súpu í Smáraskóla í hádeginu á morgun - sunnudag.  Búist er við á að annað hundrað manns mæti, og er mikil tilhlökkun að hitta ættingjana, og kynnast því, jú ég þekki flesta frændur og frænkur, en börn þeirra þekki ég ekki. Nú á að taka á því að við munum ekki aðeins hittast við jarðafarir heldur einnig við skemmtilegri aðstæður. Pabbi minn, var fæddur árið 1913 átti 11 systkin, og eru 3 þeirra lifandi í dag, Stefa fædd 1915, Magga frænka í Ameríku fædd 1924, og Ingileif á Ísafirði fædd 1933. 

Átakið hefur gengið ótrúlega vel, þrátt yfir einstaka svindl í rauðvíni og pizzum. 13 kg eru farin út í buskan og ætlaði ég að taka upphaflega af mér 15 kg, en ég er að hugsa um að halda áfram og hafa þau amk 20.  Ég er farin að vera í vandræðum með föt og fataleysi, en ég á einhver gömul í minni stærðum og farin að nota þau líka með.  En með þessu áframhaldi þarf ég að fara í verslunarleiðangur fljótlega,  tek ég stóru systur með í þann leiðangur og ef ég þekki mína rétt þá verður sú ferð ekki ódýr frekar en fyrri ferðir.  Við fórum í snyrtivöruleiðangur á fimmtudagskvöldið og snyrtibuddan var öll endurnýjuð og kom ég heim úr þeirri ferð vel máluð, en engin heima til að dáðst að fegurðinni. 

Kv. Fríða 

 


Erfiðri viku að ljúka.

Fylkir var jarðsettur á þriðjudaginn, mikið fjölmenni var viðstatt, og margir sem vottuðu okkur samúð sína og viljum við þakka fyrir það. Týra

Hundurinn okkar hún Týra verður svæfð á morgun, hún er búin að vera samferða okkur síðastliðin 15 ár. Veitt okkur og krökkunum mikla gleði, en nú er hennar tími búin. Hún hefur verðið að eldast hratt undanfarið, orðin heyrnarlaus, gigtveik, og sefur lítið sem ekkert á nóttinni með tilheyrandi gelti og vekur okkur hjónakornin margoft, það var mjög erfitt og sárt að taka þessa ákvörðun.

Litla Dís verður ársgömul á morgun föstudaginn 24.okt. Þær mæðgur ætla að koma aðeins í heimsókn til mín á morgun, en amma skömmin er að fara í óvissuferð með vinnunni eitthvert út í buskan á laugardag fram á sunnudag, og missi ég því af afmælinu. Var ég mjög tvístígandi hvað ég ætti að gera, vildi af hvorugu missa.  Veðurspáin er ekki góð fyrir helgina, og ég fer vopnuð, lopasokkunum, vettlingunum, húfu og gönguskóm, ásamt góða skapinu. En afi ásamt langömmu og Guðný Maríu fara í veisluna hennar

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband